
18.05.12
3ja vikna myndir af hvolpunum ásamt nöfnum hér
Photos of the puppies 3 weeks and names here

Please someone tell this puppy it´s the other side I want to photograph !!
13.05.12
Ekki óalgeng sjón á mínu heimili, Snabbi og Dagbjört að horfa saman á teiknimynd, gamli gaurinn veit að gott er að kúra hjá svona sætri stelpu :)
Not an unususal sight at my home, Snabbi and my youngest Dagbjört watching a cartoon together :)

Það gengur vel með hvolpana , þeir dafna og stækka og eru farnir að opna augun og reyna að staulast aðeins um hægt að sjá nokkrar myndur á þessari slóð
hvolpamyndir
The puppies are doing very well and are getting cuter and more adorable by every day more pictures here

8. maí
Ný mynd af Leifturs Strók 2ja ára en hann býr í Svíþjóð
Leifturs Strókur 2 years, he lives in Sweden

ISCH SCH Álfadísar Drauma Bjartur 4 years father of our Volcano- boys litter 2010 and son of ISCH Leifturs Snerpa, He lives in Sweden near Stockholm with his owner and breeder Kristin Kristvinsdottir .
1. maí
Tókum myndir af hvolpunum í dag ekki auðvelt verk en hafðist að lokum, hægt að sjá þær hér
Photos of the puppies 5 days old here
Kvika wondering what on earth we are doing during puppy photo session

29.04.12
Þann 27. apríl eignaðist Kvika 9 hvolpa, 2 rakka og 7 tíkur og heilsast öllum vel. Einstaklingsmyndir koma bráðlega
On the 27th of april Kvika gave birth to 9 puppies, 2 males and 7 bitches, individual photos will come soon
The happy new mum with her puppies
19.04.12
Skemmtileg fjölskyldumynd en Kvika er þarna á milli foreldra sinna Funa og Eldingar, en hún hefur undanfarnar vikur verið hér hjá okkur , komin heim aftur á æskuheimilið til að eignast hvolpana sína í sama herberginu og sama kassanum og hún sjálf fæddist í og pabbi hennar Funi ólst upp í fyrstu vikurnar sínar. Þökkum eiganda hennar Vordísi Sigurþórsdóttur innilega fyrir að hafa hugsað svona vel um hana og gera okkur þannig kleift að nota hana í okkar ræktun bíðum spennt eftir þessari kynslóð af nýjum Leiftrurum :)
A beautiful familyphoto but little Kvika is there between her parents, father Funi to the left and mother Elding to the right . She has been staying with us for a couple of weeks, back home again to have her first litter in the same room and the same litterbox she herself was born in . We thank her owner Vordís Sigurþórsdóttir for taking such good care of her and thus making us able to use her in our breeding, we are getting very excited for this upcoming new litter.
Are we not adorably handsome ?

CIB ISCH Leifturs Funi ISCH Leifturs Kvika og CIB ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen
Kvika heldur áfram að stækka þó það sé nú dagamunur á henni eftir því hvernig hvolparnir liggja þarna inni. Spenningurinn vex og margir sem reyna að giska hvað margir séu þarna, hvað heldur þú ? :)

ISCH Leifturs Kvika 7 weeks
15.04.12

sweet Hermes with his gold medallion
mynd :Kristín Þorvaldsdóttir
Smá mont, Leifturs Drómi "Hermes" keppti í hundafimi í gær og vann glæsilega sinn flokk, óskum eiganda hans Kristínu Þorvaldsdóttur innilega til hamingju með árangurinn og Hermesi með gullið. Hermes er 7,5 ára úr fyrsta gotinu okkar og fyrsta whippetgotinu hér á landi og hann er svo sannarlega í blóma lífsins því ekki nóg með að hann taki hundafimina svona glæsilega þá er hann ótrúlegur í beituhlaupinu líka. Hlökkum til að fylgjast áfram með honum og Kristínu og hvað þau gera næst :) . Fengum að birta hérna myndir frá keppninni, myndirnar tók Dóra Ásgeirsdóttir þökkum innilega fyrir.
Yesterday Leifturs Drómi "Hermes" from our first litter competed in agility 1 and won his class, we are of course superproud and gratulate his owner Kristín Þorvaldsdóttir with this great achievement and Hermes with his gold medallion a handsome sweet winner. Hermes is 7,5 years old and not only does he compete in agility but is really doing great on the field in lurecoursing, we look forward to follow him and Kristin in the future. We got some pictures from the competion taken by Dóra Ásgeirsdóttir thank you.
Einnig smá video af Hermesi/also a video of Hermes here


12.04.12
Ný mynd af Leifturs Kviku gengin 6 vikur/6 weeks

04.04.12
Kvika litla er hvolpafull og mun eignast hvolpana í lok apríl, áhugasamir geta haft samband.
Sweet little Kvika is definetly pregnant and we are very excited for this upcoming litter .
Leifturs Kvika at 6 weeks
10.03.2012
Ný mynd af nýja meistaranum ISCH Leifturs Kviku sem er vonandi tilvonandi móðir næsta Leiftursgotsins núna í vor :)
Picture of our new champion ISCH Leifturs Kvika, but hopefully she is now expecting puppies this spring with our wonderful ISCH Siprex Dante.
09.03.1012
Er búin að uppfæra hvolpasíðuna með nýjum myndum af Kviku og Dante, þökkum Gæludýrabúðinni Korputorgi innilega fyrir afnotin af ljósmyndasvæðinu .
Puppy page updated with information of our next litterplans this spring , puppies

ISCH Siprex Dante
02.03.2012
28.02.2012 pöruðum við ISCH Siprex Dante með ISCH Leifturs Kviku og ef allt hefur tekist megum við búast við hvolpum í lok apríl sem svo verða tilbúnir til afhendingar í lok júní byrjun júlí, frábær tími að vera með hvolpa :) hægt að skoða ættartöfluna hér
Það hafa ekki fæðst whippet hvolpar s.l 2 ár þannig við vonum innilega að þetta ár fagni nýjum fallegum whippetum hér á Íslandi
uppfærum með myndum á hvolpasíðuna fljótlega.
Fengum að deila þessari fallegu mynd af hinum myndarlega Leifturs Stromp "Ringo" úr eldgosastrákagotinu 2010 . Takk Droplaug fyrir myndina :)
We thank Droplaug for allowing us to share this pic of her dog Leifturs Strompur "Ringo" but he is from our volcanoboys-litter 2010.

Erum líklegast með ný spennandi gotplön sem verða uppfærð á næstu dögum !
Alþjóðleg sýning HRFÍ 25-26 febrúar 2012
BOS ISCH Siprex Dante with CACIB
Leifturs Blossi exc 1 open class
ISCH Leifturs Kvika 2 best bitch with cert new Icelandic champion
nýr Íslenskur meistari
Leiftursmót 2011

Þátttakendur á Leiftursmótinu 2011 ásamt eigendum
(nöfn hundanna frá vinstri Elding, Hneta, Gosi, Kvika, Eldar, Þoka, Blossi ,Nói, Þorri, Hviða, Funi, Ringo, Tíra og Dante)
Það leit út fyrir að það yrði ekkert Leiftursmót á síðasta ári , en undanfarin 2 ár höfum við farið á Kirkjubæjarklaustur en enn á ný voru eldfjöll að stríða okkur. Vegna eldgosins í Grímsvötnum í maí 2011 var öskumagnið svo mikið á Kirkjubæjarklaustri að ákveðið var að það væri ekki mönnum né hundum bjóðandi og var því mótinu aflýst. En í september fengum við að nota tún í Mosfellsdalnum og var ákveðið með stuttum fyrirvara að halda Leiftursmót í styttri útgáfu. Það heppnaðist allt mjög vel og var mætingin mjög góð og erum þakklát öllum sem sáu sér fært að mæta og eiga með okkur góðan dag sérstakalega eigendum Leifturs Tíru sem komu brunandi frá Stykkishólmi til að taka þátt og eigendum Eld-Gosa sem skelltu sér alla leið frá Akureyri til okkar. Steinþóra mætti með parýtjald og skellti því upp á túninu við Mosfell og var þar boðið upp á kaffi og kökur í hléinu á milli hlaupa, það voru þátttakendur sem mættu með allar kræsingarnar en við hjá Leifturs buðum svo öllum í grill heima hjá okkur um kvöldið þar sem nýr Leifturs Hlaupagikkur var krýndur og ýmsar viðurkenningar afhentar.
Berglind Guðbrandsdóttir eigandi Blossa setti saman smá myndband frá deginum Leiftursmót 2011
Leifturs Hlaupagikkur 2011
CIB ISCH Leifturs Funi

2 sæti.
ISCH Álfadísar Drauma Dagbjört
"Þoka"
eigandi Selma Olsen
3 -4 sæti.
Mossbawnhill Glory Bound
"Eldar"
eigandi Selma Olsen
og
Leifturs Strompur
"Ringo"
eigandi Friðrik Helgason
Það var nokkuð augljóst að það eru að verða kynslóðaskipti í hlaupunum núna, margar nýjar ungar stjörnur sem sem eiga eftir að láta mikið á sér bera á næstunni, eins og bræðurnir Leifturs Strompur "Ringo" og Leifturs Eld-Gosi "Gosi" og systurnar Leifturs Kvika "Kvika" og Leifturs Tíra "Tíra" .
Aldursforsetinn Leifturs Læðingur "Þorri" 7 ára og þrefaldur Leifturs Hlaupagikks verðlaunahafi sýndi enn ótrúlegan sprengikraft og gaf ekkert eftir og eins og öll hin árin var hann enn á ný ljósmyndafyrirsæta ársins en það nást alltaf ótrúlega magnaðar myndir af honum. Myndatökuna sá dóttir mín Snæfríður Björg um og set ég inn nokkrar hérna fyrir aðra að njóta með okkur þeim ótrúlega krafti,gleði og fegurð sem whippetinn býr yfir og við getum öll verið sammála að við eigendurnir skemmtum okkur ekki verr við þessa iðju og vonum við hérna á Leifturs að vorið og sumarið 2012 bjóði upp á margar skemmtilegar stundir.

Leifturs Læðingur "Þorri"

Leifturs Eld-Gosi og Leifturs Strompur "Ringo"

Happyface Leifturs Blossi skemmti sér vel eins og sleppari hans Steinþóra Þórisdóttir

Leifturs Hneta og Leifturs Hviða

Leifturs Blossi sleppari Berglind Guðbrandsdóttir startari Anna Kristrún Sigurpálsdóttir, Leifturs Konfekt "Nói" sleppari Steinþóra Þórisdóttir
Margrét Sóley fermdist síðasta vor og teknar voru yndislegar fermingarmyndir og fengum við að birta eina hér
Leifturs Læðingur "Þorri" og Margrét Sóley
Lósmyndari Ruth Ásgeirsdóttir hjá Ljósmyndir og List
Fengum senda þessa mynd af Leifturs Strók fd. apríl 2010 frá Kristínu Kristvinsdóttur eiganda og meðræktanda en hann flutti út til Svíþjóðar með henni á síðasta ári. Pabbi hans Álfadísar Drauma Bjartur náði þar fljótt sænska meistarastiginu og er nú bæði íslenskur og sænskur meistari, óskum Kristínu til hamingju með þann frábæra árangur.

Langt síðan síðasta uppfærsla var gerð hér en reynum að bæta úr því og byrjum á sýningarárangri 2011:
Nýjir íslenskir meistarar:
ISCH Leifturs Mynta
ISCH Siprex Dante
Nýr alþjóðlegur meistari :
CIB ISCH Leifturs Funi
Leifturs Blossi fékk svo 1 meistarastig
Leifturs Hunang 1 meistarastig
Leifturs Strompur 1 meistarastig
Leifturs Kvika 2 meistarastig
Leiftursgengið

Fréttir/news 2010
11.08.10

Leifturs Strókur nearly 4 months
(ISCH Álfadísar Drauma Bjartur x Leifturs Hviða)

ISCH Leifturs Funi almost 4 years
(CH Adagio Love Supreme x CH Siprex Maja )
16-18.07.10

Fimmta Leiftursmótið var haldið á Kirkjubæjarklaustri, en árlega höfum við boðið hvolpakaupendum okkar að eyða með okkur helgi þar sem við kynnumst innbyrðis og leyfum hundunum að njóta sín við það sem þeim finnst skemmtilegast að gera .
Þetta árið var bara einstakt , en sólin skein á okkur allan tíman og hver hefði trúað því að við myndum lenda í því hér á Íslandi að það yrði of heitt fyrir hundana að hlaupa :) Á kvöldin var svo grillað og spjallað og krakkarnir léku sér vel og gátu meira segja synt í ánni Stjórn. Við þökkum öllum Leiftrurum sem létu sjá sig fyrir yndislega helgi, einnig þökkum við Gísla Kjartanssyni bónda á Geirlandi fyrir lánið á túninu, en betra hlaupatún hefðum við ekki getað óskað okkur, einnig þökkum við Benedikti Lárussyni fyrir að koma hópnum vel fyrir á tjaldstæðinu og alla velvildina.
Gaman var að sjá ný andlit, en Tíra úr Eld-gotinu sem fæddist í september mætti og einnig komu tveir af Eldgosa strákunum ekki nema 3ja mánaða og fengu þeir að hlaupa krútthlaup með pínubeitu :) frábært að sjá hvað litla Leifturs fjölskyldan okkar stækkar.
Nýr Leifturs Hlaupagikkur var krýndur og þetta árið var það Leifturs Andvari "Sprettur" sem fór heim með titilinn, óskum Jónu Lind og fjölskyldu innilega til hamingju með árangurinn :)
2 sæti Leifturs Hviða
3 sæti Leifturs Læðingur "Þorri"
Það var virkilega erfitt að velja úr hundunum þetta árið, enda komu margir sterkir fram, alveg frábært að sjá hvað beituhlaupið hefur eflst á þessu eina ári
Snæfríður Björg dóttir mín tók allar myndirnar þessa helgina
This weekend we had our 5th annual Leiftursmót, were we invite our puppy buyers to spend a weekend together with us, getting to know each other and letting the dogs do what they love to do run run run :) This year was fantastic, the weather was wonderful sun all the time and who would have believed that here in Iceland we would end up having so warm weather that our dogs didn´t want to move :) We managed to have both a lure coursing day and a race day. This years running star was Leifturs Andvari "Sprettur" and we gratulate his owner Jóna Lind and family. New faces in the Leifturs family met up and even 2 of the Volcano boys from our last litter came and we had a special little adorable mini-race for them with a fun cute croc- bait :) they proofed that they were pure whippets :)
We thank the farmer Gísli Kjartansson for lending us the perfect field to run on and Benedikt Lárusson for making a special whippet place on his camping ground for everyone :)
My daughter Snæfríður took all the pictures








Dagbjört með Leiftursmóts húfuna
04.07.10
Snæfríður Björg elsta dóttir mín er margt til listar lagt og eitt af því er að færa whippet fjölskyldulífið okkar í skopmyndastíl og þar sem þetta er svo skemmtilegar myndir er ég byrjuð að setja þær hingað inn, þær tvær fyrstu er hægt að skoða hér
Snæfríður Björg my oldest daughter is very talented and has been drawing up our whippet family life in cartoon style, they are quite witty and I have started to put them on the web please see the first 2 here
02.07.10
Ný mynd af Leifturs Kviku 9 mánaða en hún hefur verið sýnd tvisvar á sýningum HRFÍ í hvolpaflokki og í bæði skiptin hlotið sæti í besta hvolpi sýningar
New picture of beautiful Leifturs Kvika 9 months but she has been doing really well in puppy class
puppy 4-6 months, BOB hp and BIS-puppy 3 judges Espen Engh and Benny Blid
puppy 6-9 months, BOB hp and BIS-puppy 2 judges George Kostopoulos and Annukka Paloheimo

(ISCH Leifturs Funi x INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen)
Einnig ný mynd af Leifturs Myntu hér
Also a new picture of Leifturs Mynta here
Erum með spennandi plön fyrir næsta got okkar vonandi í haust, en þá munum við para Leifturs Golu með Siprex Dante !
hægt að skoða ættartöfluna hérna ,
Nánari upplýsingar bráðlega , áhugasamir velkomnir að hafa samband !
Our next breeding plans, hopefully this fall , we plan to mate Siprex Dante to lovely Leifturs Gola
Siprex Dante
(CH Boxing Helenas Epos Ena x CH Siprex Siri )
29.06.10
Þá eru allir Eldgosa strákarnir fluttir að heiman, óskum nýjum eigendum innilega til hamingju með gæjana !!
8 vikna myndir af þeim hér
The Volcano Boys have now moved out to their new homes, and we gratulate the new owners with the new family addition and wish them all the best !!
Pictures of them 8 weeks here
Helgi Freyr and the Volcano Boys :)
Mjóhundadeildin hefur verið með beituhlaupsæfingar og það er ánægjulegt að segja frá því að á æfingu um daginn voru 3 nýjir hundar tengdir okkur sem kveiktu á beitunni, Leifturs Snerpa, Leifturs Drómi og Siprex Dante alveg frábært !!!
The Sighthoundclubs recent lure coursing practises added 3 more dogs connected to us in this wonderful sport, Leifturs Snerpa,Leifturs Drómi and Siprex Dante !
20.06.10

Leifturs Eld-Gosi er enn til sölu hann er gullfallegur efnilegur rakki og ljúfur sprelligosi :)
Okkur gekk vel á sýningu HRFÍ 6 júní , / we did well on KC show 6th of june judge George Kostopoulos Greece
Puppies 6-9 months
Leifturs Blossi hp and BOS
Leifturs Kvika hp BOB and BIS-2
Rakkar/males
Siprex Dante Cac and 2 best male
Leifturs Hunang res Cac and 3 best male
Tíkur/bitches
Leifturs Mynta res Cac 2 best bitch
Leifturs Gola res Cac 4th best bitch
28.05.10
Hvolparnir stækka og dafna, þetta eru ótrúlega yndislegir gæjar ljúfir og rólegir. Nyjar myndir hér ásamt nöfnunum þeirra. Skiljanlega eru nöfnin tengd eldgosinu .
The puppies are just wonderful, 3 wonderful boys with the lovliest temprament, new pictures here and their names wich are of course connected to the volcano, not everyday you miss your puppies delivery due to volcanic eruption !!
16.05.10
Fyrsta beituhlaupsæfing ársins var haldin, hvolparnir okkar úr Eldgotinu var sérstaklega boðið enda bjóðum við öllum okkar hvolpum upp á beituhlaupsþjálfun.
3 hvolpar af 6 mættu og tóku öll beituna að hrein unun var að sjá. Einnig mættu nokkrir "pro" beitarar úr eldri gotum sem sýndu listir sínar með miklum sprengikrafti . Virkilega ánægjuleg stund með góðu fólki og flottum hundum, getum vonandi endurtekið þetta sem fyrst aftur.
We met and had our first Lure coursing practise this year, the puppies from our fire litter were specially invited to introduce them to the lure and this wonderful sport, 3 puppies met up and all showed great potential and took the lure with great eagerness. Older dogs then got their run and showed their power to the limits, always breathtaking to see this wonderful breed do what they were bred to do. Thanks to everyone that met up, until next time :)
Karl með Leifturs Neista, Berglind með Leifturs Blossa, Vordís með Leifturs Kviku og Leifturs Myntu, Gunnur með Leifturs Funa,Leifturs Golu og Eldingu, Sigrún með Siprex Dante og Margrét með Leifturs Læðing og Leifturs Konfekt. Á myndina vantar Leifturs Súkkulaði, Leifturs Hunang og Álfadísar Drauma Geisla en þau voru farin fyrir hópmundatökuna.
Leifturs Neisti montinn með beituna :)
Leifturs Kvika einbeitt
Leifturs Blossi sýnir að hann er sonur Funa :)
09.05.10
Snæfríður Björg dóttir okkar fermdist og auðvitað átti fermingarmyndin að vera af henni og hundinum hennar Funa, við búum hliðin á Karmelítuklaustrinu í Hafnarfirði og nunnurnar þar listrænu máluðu fyrir hana fermingarkerti með Funa auðvitað :) Ekki annað hægt að segja en whippet sé í stóru hlutverki hérna hjá okkur :)
Today was our oldest daugthers confirmation day, of course she wanted the picture taken of her and her dog Funi, also we live beside a nunnery where the nuns are very artistic and usually paint candles for the confirmation, they painted Funi on her candle so he played a big part in her big day :)


25.04.10
Hviða ákvað að fera snemma á stað og fæddi 3 hrausta og fallega rakka 25.04.10. Þeir komu okkur öllum á óvart ég var búin að vera í Noregi og var á leið heim en eldgosið í Eyjafjallajökli kom í veg fyrir beina leið heim þannig við þurftum að fljúga frá Osló til Glasgow og þegar við hringdum heim til eldri barnanna okkar svöruðu þau andmóð að þau höfðu fundið Hviðu upp í rúminu okkar og hjá henni hvolp !!!! Þeim var mikið brugðið en fóru strax í það að undirbúa hvolpaherbergið og bera hina nýbökuðu móður ásamt syni niður og finna til allt sem þau vissu að þyrfti til. Þau hringdu svo eftir aðstoð og María Teresa vinkona mætti í tíma og tók á móti rakka 2 og svo kom Kristín Kristvinsdóttir eigandi Bjarts og aðstoðaði við komu rakka 3. Á meðan flugum við til Akureyrar og fórum svo með rútu um nóttina til Reykjavíkur. Krakkarnir stóðu sig eins og hetjur og viktuðu hvolpana og skráðu niður fæðingartíma hjá þeim nema þeim fyrsta auðvitað. Þökkum Maríu T og Kristínu innilega fyrir að bregðast fljótt við og hjálpa þeim.
Our little tigress decided to surprise us and delivered her puppies on day 57 april 25th. I had been in Norway for a week and was on my way home, but due to the volcanic eruption here the main International airport in Iceland was closed because of volcanic ashes in the sky. So our trip home took a bit longer than usual, we had to fly from Oslo to Glasgow and when we landed there and phoned home our 2 oldest children told us a bit shocked that when looking for Hvida they had found her in our bed an lying beside her was a little puppy !!! They hurried up and made the delivery room ready and found everything they thought they needed, and then carried the little mother and her newborn son in there. Then they called for help and our dear friend Maria Teresa arrived in time for the arrival of pup 2 and Kristin owner of the stud came also and witnessed the birth of the 3rd and final puppy. Meanwhile after several hours of waiting in Glasgow we were flown to Akureyri in north of Iceland and from there we travelled by bus to Reykjavik arriving at 7 in the morning. Finally home relifed children welcomed us and 3 healthy young males lay with the new happy mother, our third generation of Leifturs puppies :) We are very proud of our children and thank Maria and Kristin for all the help !!
3 little boys
Leifturs Hviða fallega litla tígrisdýrið okkar á von á hvolpum í lok apríl , nánar hér
Dagbjört and Snabbi
Rakkarnir mínir ásamt Eldingu á góðum degi.
My males with Elding on a good day out.
Siprex Dante, Leifturs Funi, Siprex Petter, Courtborne Keyzers Arwen
Icelandic Kennelclubs International show 27.02.10
Males
Álfadísar Drauma Bjartur, cc cacib BOS (became icelandic champion)
Bitches
Álfadísar Drauma Ljósbrá, cc,cacib BOB BIG2
ISCH Leifturs Snerpa,ck, res cacib
INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen ck
Leifturs Súkkulaði , ck
Puppies
Leifturs Kvika, BOB ,BIS 3

Leifturs Kvika
(ISCH Leifturs Funi x INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen)
Snabbi er kominn aftur heim til okkar hann er mikill barnakall en finnst barnadótið líka stórsniðugt með mikið notagildi :)
Dear Snabbi is back home, he loves kids and likes their toys also and finds a good way to use them in typical whippet fashion :)
Janúar
30.01.10
Í dag var fínn whippethittingur þar sem hvolparnir úr Eldgotinu voru kynntir inn í hópinn, eftir góða útiveru saman í sól og léttu frosti var haldið heim til okkar í kaffi og kökur. Frábær dagur með frábæru fólki og flottum hundum.
Today we had a whippetgathering and the puppies from our last litter were introduced into the group. In beautiful winter weather with the sun shining on us we had a stroll while the dogs ran and played. After that we went home to us for coffe and cakes , a nice day with good people and wonderful dogs :)
Gaman að sjá hvað fólk í kringum okkur er handlægið og hugmyndaríkt smá myndasyrpa af því :)
The wool from our icelandic sheep has kept us alive through the centuries during cold winters , in recent years the wool has been rediscovered as a fashionable thing to wear and Icelanders are knitting as never before. It´s really enjoyable to se the creativity among the whippet owners :

Steinþóra owner of L Læðingur "Þorri" and L Konfekt "Nói" made this dress for her daughter Margrét

Þorri in his woolly jumper and Kvika being just cute and adorable in her pink one
My sister Embla made this one for my daughter Sædis to match her dog Hviða
little tough guy L Blossi showing off his"awsome" skull coat made by his owner Berglind
Fréttir 2009
Yndislegi Snabbi minn ásamt Kolbrúnu Eik frænku minni sætu , en hann hefur haft það mikilvæga hlutverk undanfarið að vera félagi og verndari hennar og Þórdísar Önnu stóru systur hennar, hann stendur sig meistaravel þar.
My sweet wonderful Snabbi (Siprex Petter) has had a very important "job" in being a protector and companion for my cute niece Kolbrún Eik, its wonderful to see how kind he is and patient and the positive reaction he has on her I´m so proud of him.
4 hvolpar úr Eldgotinu hittust einnig fyrir áramót og skemmtu sér vel saman, þau litu vel út og yndislegt að sjá hvað allir eru ánægðir með hvolpana sína, þökkum eigendunum fyrir góðan dag .
4 puppies from our Fire litter (Funi and Elding) met up for a nice time together, it was wonderful to see them again and see how happy the owners are with them.
Í lok desember fengum við loksins smá snjó hér í höfuðborginni og skelltum okkur í túr með stóra litla Dante, hann vex og dafnar vel .
Just before the new year we finally got some snow here for a couple of days and the dogs had a good but cold run together and Dante liked the female company a lot.
Elding, Funi (sniffing after mice) and Dante boy
Fékk senda þessa ógurlega sætu mynd af Leifturs Súkkulaði "Freyju" með nýjan vin.
Got this cute picture of Leifturs Súkkulaði "Freyja" and her new friend .
Í lok nóvember fluttu allir hvolparnir á nýju heimilin sín þar sem þeir dafna vel hjá góður fólki við óskum þeim öllum til hamingju með krílin sín. Því miður gafst ekki tími til að taka uppstilltar myndir af þeim öllum áður en þau fluttu en bætum við þeim seinna, myndir 8-10 vikna hér.
In the end of november all the puppies moved to their new homes, we gratulate the new owners and wish them good luck. I was busy with my little daughter and did not have time for stacket pictures of them but will take them later. pics 8-10 weeks here
Leifturs Glóð checking out the cute human puppy
06.11.09
Nýjar myndir af hvolpum 7 vikna hér
New puppy pics at 7 weeks here

29.10.09
Eignuðumst yndislega litla stúlku :)
We got a little baby girl and couldn´t be happier :)
23.10.09
Loksins nýjar myndir af hvolpum Eldingar og Funa 4,5 vikna og ættbókarnöfnin þeirra hér
Finally new pictures of the puppies 4,5 weeks and their names here
08.10.09
Siprex Dante nýji prinsinn frá Noregi losnaði úr Hrísey og nýtur lífsins hjá Sigrúnu og Þórarni. Hann er algjör gullmoli og er ég ekkert smá ánægð með hann,gullfallegur og efnilegur.
Siprex Dante our new imported norwegian male came out of quarantine in good health and spirit and is now enjoying his new life in Iceland with Sigrún and Þórarinn my co owners. He is a wonderful young guy and very very promising, thank you Berit once again :)

Siprex Dante
03.02.09
Icelandic kennelclubs International dogshow judge Vincent O´Brian
rakkar/males
ISCH Leifturs Funi BOS with his 3rd CACIB
tíkur/bitches
1 ISCH Leifturs Snerpa CACIB, BOB, BIG
2 Leifturs Mynta CC
3 ISCH Leifturs Stilla
4 Leifturs Gola

ISCH Leifturs Snerpa BOB BIG and ISCH Leifturs Funi BOS
Karen Ösp Guðbjartsdóttir var svo að keppa í ungum sýnendum og notaði hann Funa okkar, þau stóðu sig frábærlega og endaði Karen Ösp í öðru sæti og varð þar með önnur stigahæsti keppandinn á árinu og fer því sem okkar fulltrúi á heimssýninguna í Danmörku sumar 2010, við vitum að hún mun geisla þar eins og hér og óskum henni góðs gengis og þökkum henni innilega fyrir að nota hann Funa við erum mjög montin :)
Karen Ösp Guðbjartsdóttir competed in juniorhandling and used our dear Leifturs Funi, they connected perfectly and Karen Ösp ended in second place and ended the year with the second highest score and will therfore compete for Iceland on WDS in Denmark next summer. We are so proud she wanted to use Funi and know she will do well, she is like a shining star in the ring and Funi just adores her :)
Til hamingju/Congratulations

Karen Ösp and Funi
20.09.09
2 rakkar og 4 tíkur undan Eldingu og Funa fæddust :) Myndir hér
Puppies have arrived after Funi and Elding !!
19.09.09
Við höfum boðið Rok gotinu ( 2007) og Nammi gotinu (2008) að koma og æfa beituhlaup í Mosfellsdalnum og hafa nokkrir verið duglegir að mæta við gátum glaðst s l laugardag þegar Leifturs Konfekt og Leifturs Gola náðu sannarlega að sanna sig og bættust í hóp Leifturs hunda sem geta farið að æfa beituhlaup að krafti :) Úr nammi gotinu hafa Leifturs Mynta og Leifturs Súkkulaði áður einnig náð þeim árangri og vantar herslumunin að Leifturs Marsípan bætist í hópinn. Úr rok gotinu eru það Leifturs Andvari, Leifturs Feykir, Leifturs Gustur og Leifturs Hviða sem áður voru með þetta á hreinu. Þökkum eigendum fyrir að mæta enda stórskemmtilegt sport að stunda, vonandi getum við haldið e-ð áfram í vetur og hvetjum þau sem ekki hafa prófað að mæta.
We have invited two off our litters to practise lure coursing with us in september and have had a great time with great people and dogs, its always a joy when new dogs take the lure and we gratulate the owners and thank them for attending, hope we can practise more in the winter if the weather is mild.
Við Elding höfum átt ýmislegt sameiginlegt undanfarnarna 2 mánuði og fékk ég systur mína Emblu Sigurgeirsdóttur til að taka myndir af okkur, Elding gengin 8 vikur ég 32 :)
Me and Elding have shared a lot these last 2 months and as a memory I asked my sister Embla Sigurgeirsdóttir to take some pictures of us, Elding 8 weeks me 32 weeks :)

08.09.09
Siprex Dante kom til landsins og dvelur nú í Hrísey, en áður enn hann kom hingað til lands náði hann að mæta á sýningu í Drammen í Noregi þar sem hann náði þeim glæsilega árangri að verða Besti hvolpur sýningar.
Siprex Dante ( multi ch Boxing Helenas Epos Ena x multi ch Siprex Siri) has finally arrived here in Iceland and is now staying in quarantine, but before he came here he was able to attend a show in Drammen Norway and became BIS puppy :)

Nýjar myndir af Leifturs Konfekt og Leifturs Hunang hér
New pictures of Leifturs Konfekt og Leifturs Hunang
22/24.07.09
INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen var pöruð með ISCH Leifturs Funa, hvolpar væntanlegir ca 20.09.09
INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen was mated to ISCH Leifturs Funi, hopefully we will have puppies around 20.09.09
17-19.07.09
Héldum okkar árlega Leiftursmót í fjórða sinn og nú á Kirkjubæjarklaustri. Þökkum Lárusi bónda á Klaustri innilega fyrir lánið á túninu . Þetta heppnaðist einstaklega vel, í fallegu umhverfi í góðum félagsskap og brakandi sól og blíðu. Við þökkum öllum þátttakendum fyrir frábæra samveru þessa helgi. Hinn árlegi Leifturs hlaupagikkur var krýndur að vanda og í þetta sinn var það Leifturs Gustur sem hlaut þann titil, við óskum honum og eiganda hans henni Lindu til hamingju :)
This weekend our annual Leiftursmót was held for the 4th time. Every year we invite our puppybuyers to join us for a weekend for all kinds of whippet activities and owner mingling with good food and great company. This time it was held in the small village Kirkjubæjarklaustur in south of Iceland with good view off our biggest glacier Vatnajökull. Camping, lure coursing, even a lesson in tracking and lots of good food and really enjoyable time with great people. We thank you all who had the opportunity to participate with us this year. This years Leifturs runningstar was Leifturs Gustur we gratulate him and his owner Linda :)

Bjartur og Leifturs Andvari in action
Leifturs Gustur og Draumur
Leifturs Funi
Leifturs Gustur
I´m not sure who´s the bait...... ;)
One non- whippet joined us this year the policedog Aron with his owner and trainer Kristin Sigurðardóttir. We thank Kristín for the lesson in tracking, the whippets who tried Leifturs Andvari, Leifturs Funi and Siprex Petter showed good potencial .
Þoka and Aron
27.06.09
Sumarsýning HRFÍ/ Icelandic kennel clubs summershow , judge Tamás Jakkel
males:
3 best male ISCH Leifturs Funi res CC
4 best male Leifturs Hunang res CC
Bitches
3 best bitch Leifturs Gola res CC
4 best bitch INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen res CC
5 best bitch ISCH Leifturs Stilla res CC
6 best bitch Leifturs Mynta res CC
17.06.09
Komin tími að uppfæra aðeins enda ýmislegt að segja frá :)
Leifturs Nammi "Nikita" mætti á sína fyrstu sýningu í Færeyjum og endaði sem Besti hundur sýningar 4 !!! Dómari var Kresten Sceel, og sýningin haldin í samvinnu við Dansk kennelklubb. Innilega til hamingju Esther með litlu dömuna, frábært hjá ykkur.
Leifturs Nammi " Nikita" became BIS4 at her first show in the Faroe Islands only just 12 months old. Judge Kresten Scheel. Gratulations Esther and Nikita, great job !
Leifturs Mynta kláraði svo Hlýðni 1 með góðum árangri og varð fyrsti íslenski mjóhundurinn til að klára þann áfanga. Hún og Vordís stefna svo á bros og bronspróf í sumar. Innilega til hamingju Vordís glæsilegur árangur og hjá ekki eldri tík en Mynta var bara 9 mánaða þegar námskeiðið hófst, geri aðrir betur.
Leifturs Mynta finished her obiedience course with excellent and became the first Icelandic sighthound to finish that, she and her owner Vordís are going to continue and are training for a obidience test later this summer, good luck and gratulations. Mynta was only 9 months when she started.
Leifturs Funi kláraði hundafimisnámskeiðið sitt og voru 3 mjóhundar sem útskrifuðust með honum, þeir stóðu sig allir afburðavel. Funi skemmtir sér rosa vel í fiminni og vantar helst á hann bremsurnar ;) hann mun halda áfram. Funi var annar whippetinn sem klárar hundafimisnámskeiðið en fyrsti whippetinn og fyrsti mjóhundurinn hér á Íslandi til að klára þann áfanga er Leifturs Drómi "Hermes" :)
Our own ISCH Leifturs Funi and I took a course in agility and we loved it, Funi did great his only "problem" was that he didn´t have any brakes and flew over everything with me far behind..... We will continue. Funi was the second whippet to finish the agility course here in Iceland . The first whppet and the first sighthound in Iceland to finish was Leifturs Drómi.
Hér er svo ný mynd af væntanlegri viðbót okkar í whippetstofninn okkar en Siprex Dante kemur til Íslands 4 eða 5 ágúst og mun þá dvelja í Hrísey í 4 vikur.
A picture of our new addition Siprex Dante who will arrive to us her in Iceland this fall.
31.05.09
Í gær var hlaupavélin sett upp á vikulegum whippet hittingnum, vorum heppnari með veður en við bjuggumst við og allir skemmtu sér konunglega. Hundarnir stóðu sig gríðarlega vel og náðust margar góðar myndir.
On the weekly whippet gathering we invited the dogs to try lure coursing and as you can see they loved it :)
Nói og Þoka

Sumir reyndar misskildu hvað þeir áttu að "veiða" Skaði veiðir Þorra
Hviða tætir upp völlinn
23.05.09
Tók nokkrar myndir af hraða brjálæðingnum okkar henni Hviðu þar sem hún sýnir nokkuð vel snerpuna hjá whippet .
Some pictures of our "wildcat" Leifturs Hviða in action showing the agility of the whippet breed .

04.05.09
03.05.09
Í dag tókum við fram hlaupavélina í fyrsta sinn í ár, var ágætis mæting og gaman að sjá hvað hundarnir voru æstir að hlaupa, sérstaklega stolt af hvolpunum frá gotinu síðasta sumar sem fengu að prófa í fyrsta sinn og sýndu og sönnuðu að bæði hlaup og veiðieðli er á sínum stað. Nokkrar myndir frá deginum :)
We took our lure coursing machine for this years first spin, and it was real fun to see how well the young ones from last summers litter reacted well to the bait.
Leifturs Mynta einbeitt
Leifturs Súkkulaði
Leifturs Hneta
mæðgurnar Þoka og Leifturs Snerpa
22.04.09
Jæja þá er ég búin að velja rakkann sem við ætlum að flytja inn, það var alls ekki auðvelt þó þeir hafi bara verið 2 enda alveg frábært got. Hann kemur frá Siprex ræktuninni í Noregi undan INTCH NORDCH Siprex Siri ein sú fallegasta tík sem ég hef séð dóttir INTCH N IS CH Siprex Maja sem ég fékk að flytja inn og eignast 2 got undan . Siri var pöruð við gullfallegan belgískan rakka með frábæra ættartöflu MULTI CH Boxing Helenas Epos Ena (Justin) got sem ekki er hægt að annað en að fá úr.
I have chosen our new puppy from the Siri x Justin litter at kennel Siprex. When I saw this combination I just had to have a puppy !!! Thank you Berit Lena once again :)

Justin og Siri
Litli nýji Siprex´inn okkar og Sigrúnar Grétu

4 vikna

6 vikna

7 vikna

bara sætastur
17 apríl
Við hér á Leifturs ásamt Sigrúnu Grétu Einarsdóttur og fjölskyldu erum búin að festa okkur rakka hvolp úti í Noregi sem í dag er 7 vikna. Þetta er mjög spennandi samsetning og verður gaman að fá hann til landsins í sumar. Mun vonandi geta birt myndir og upplýsingar strax eftir helgi en ég mun velja úr gotinu á næstu dögum.
Mynd frá whippet hitting núna í vetur en eins og sjá má skemmta hundarnir sér alltaf vel að hittast og ærslast saman.
pictures off the whippets having fun in the snow at a weekly whippet gathering this winter
Mars sýning HRFÍ/ The kennelclubs international wintershow
Besti hundur tegundar, besti hundur í tegundahóp ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen
2BHT Meistarastig og Cacib Leifturs Funi , en hann varð íslenskur meistari á þessari sýningu
BOB, BIG , BOS and gained 2 champions, Leifturs Funi and Leifturs Stilla :)
Tíkur/bitches
1) ISCH INTCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen BOB and BIG
2) Leifturs Stilla hlaut sitt 3ja meistarastig og er núna 'islenskur meistari, til hamingju Arndís með dömuna glæsilegur árangur ! CC, CACIB
3) ISCH Leifturs Snerpa
4) Álfadísar Drauma Glitra
Rakkar/males
1) Leifturs Funi CC, Cacib BOS
2) Álfadísar Drauma Bjartur
Hvolpar/puppies
Tíkur/bitches
1) Leifturs Mynta hv og besti hvolpur tegundar BOB puppy hp
2) Leifturs Súkkulaði hv/hp
3) Leifturs Marsípan hv/hp
Rakkar/males
1) Leifturs Konfekt hv og 2 besti hvolpur tegundar ,BOS puppy hp
Get vonandi sett inn myndir seinna, þakka eigendum fyrir góða þáttöku og frábæran árangur :)
Þetta er hún Leifturs Mynta ásamt vinkonu sinni , hún kláraði hvolpanámskeiðið sitt s l haust með glans hlaut 10 í einkun og í vor byrjaði hún á hlýðnisnámskeiði, en þær stöllur Vordís og Mynta stefna á bronsprófið með tímanum :) verður gaman að fylgjast með framgangi þeirra.
23.02.09
Við óskum rok-gotinu okkar innilega til hamingju með 2ja ára afmælið sitt
we wish our wind-litter happy birtday, 2 years today !!!
Í dag flytur líka Leifturs Nammi "Nikita" ásamt eiganda sínum henni Esther til Færeyja, við eigum eftir að sakna þeirra beggja en vitum að Nikita verður góður Færeyjingur, þar sem hún mun halda áfram að gleðja alla í kringum sig. Nikita er litli kraftaverkahundurinn okkar en hún fæddist holgóma og virtist ekki eiga neina framtíð ,en hún var töffari en allir gátu grunað og óx og dafnaði með mikilli hjálp fyrstu 4 vikurnar en fór svo sjálf að lepja og borða og lætur ekkert stöðva sig ;) algjör rófa við getum seint þakkað Esther nóg að fyrir að taka að sér dúlluna og gefa henni svona frábært líf.
Today Leifturs Nammi "Nikita" moves to the Faroe Islands with her owner Esther. We are going to miss them both. Nikita is our little miracle dog, she was born with slight cleft palate but she was a tough one and grew strong with a lot of help her first 4 weeks, but then started to lap and eat on her own and was pretty fat as a small puppy :) We will never thank Esther enough for taking this sweet dog and giving her a loving home filled with activities and fun.
Alltaf kátust
Gangi ykkur vel :o)/ Good luck :)
Esther og Nikita
Einnig nýjar uppstilltar myndir af Leifturs Hnetu og Leifturs Nammi 8 mánaða hér
New stacked pictures of Leifturs Hneta and Leifturs Nammi

Fréttir 2008
Whippet hópurinn reynir að hittast reglulega og eru vikulegir whippet-hittingar í Heiðmörk sem hafa verið vel sóttir , gaman fyrir bæði eigendur og hunda .
Leifturs Marsípan " Emma " á sínum fyrsta hitting
Leifturs Hneta,Leifturs Súkkulaði "Freyja" og Leifturs Nammi "Nikita" leika sér saman á hitting
23.11.08
Þau sorglegu tíðindi bárust að Leifturs Feykir hafði orðið bráðkvaddur, við vottum eiganda hans henni Hlín okkar innilegustu samúðarkveðjur en þau voru frábært par. Því miður var ekki nógu vel staðið að krufningu hans þannig fullnægjandi svar mun aldrei fást þar sem hann var brenndur áður en eigandinn gat kvartað undan niðurstöðunum.
Hans verður sárt saknað af öllum hópnum.
Leifturs Feykir 23.02.07-23.11.08
Hérna er góðvinur minn Sölvi Páll að sýna nýju fínu whippet-lopapeysuna sína en hann er stoltur eigandi Siprex Maju og á heimilinu býr einnig sonarsonur Maju hann Leifturs Andvari, daglega þekktur sem Sprettur !

"Flottur"
Haustsýning HRFÍ
Leifturs Funi , Good og blár borði vegna stærðar þannig ekki varð hann meistari á þessari sýningu
#2 BT ISW-06 ISCH INTCH Courtborne Keyzers Arwen
#3 BT ISCH NCH Siprex Maja
#4 BT Leifturs Hvida m.efn
#6 BT Leifturs Gusta
20.08.08
Þá eru allir hvolparnir fluttir til eigenda sinna og óskum við öllum til hamingju með nýja fjölskyldumeðliminn sinn og hlökkum til að fá að fylgjast með þeim áfram. Komnar 8 vikna myndir af þeim hér
10.08.08
Komnar 7 vikna myndir af hvolpunum hér
06.08.08
Helgina 26.08-27.08 var hið árlega Leiftursmót haldið í þriðja sinn en það er helgi þar sem við ásamt hvolpakaupendum okkar fjölskyldum og hundum eyðum helgi saman . Á laugardeginum notuðum við hlaupavélina óspart og tókum einnig tímann á 180 m. Um kvöldið var svo grillað saman og áttum við ánægjulegt kvöld þar sem margt var spjallað og Leifturs Hlaupagikkur var krýndur en það var Leifturs Læðingur sem hlaut þann heiður en Leifturs Hviða var valin besta tík. Við þökkum öllum sem tóku þátt fyrir ánægjulega helgi.
Leifturs Læðingur hljóp 180 m á 49,8 km/klst
Leifturs Funi 49,5 km/klst
Leifturs Læðingur
Leifturs Feykir
Leifturs Gustur
Leifturs Funi
Um daginn kláraði Leifturs Feykir grunnnámskeið og kláraði það með glæsibrag, fékk 10 í einkun og var hæstur á prófinu, við óskum honum og stoltum eiganda hans henni Hlín Júlíusdóttur innilega til hamingju með árangurinn og vonum þau haldi áfram.
Leifturs Feykir stoltur með verðlaunapeninginn sinn !
Við fórum í smá lautarferð um daginn og auðvitað fengu allir að koma með líka 7 lítil hvolpakríli sem skemmtu sér konunglega, sváfu vært í búrinu í bílnum og skoppuðu svo forvitin um náttúrna og stálu nesti og sofnuðu svo öll uppgefin í hrúgu ;)
25.07.08
5 vikna uppstilltar myndir af hvolpunum hér. Það gengur mjög vel með litlu tíkina hana Nammi en hún dafnar vel, borðar sjálf og er mjög spræk ekki hrædd við neitt og dugleg að skoða heiminn :)
17.07.08
Ný mynd af Leifturs Hviðu hér og Leifturs Funa hér
15.07.08
Myndir af hvolpunum 3ja vikna hér ásamt nöfnum, en þar sem þetta er síðasta gotið hans Snabba eru nöfnin honum til heiðurs. Hann er mikill sælkeri og jól og páskar hans uppáhaldstími því þá er hægt að hreinsa skálar af góðgæti og hjálpa heimilisfólkinu að klára páskaeggin ótrúlegt að honum hafi aldrei orðið meint af.....
Fór með litlu tíkina til dýralæknis í dag og ætlaði að láta svæfa hana , dýralækninum fannst engin ástæða til þess hún feit og pattaraleg og hress og gæti alveg átt framtíð , en hún er örlítið holgóma, þannig við ákváðum að gefa henni sjéns enda yndisleg og verður hin mesta kelirófa þess sem tekur hana að sér . Brosti alla leiðina heim og var mikil gleði þegar ég kom með hana :)
14.07.08
Verðið að afsaka en hér hefur verið nóg að gera, hvolpar og flutningur þannig það hefur ekki verið mikið um tölvuvinnu undanfarið. Hvolpar dafna vel og stækka, því miður var ein tíkin ekki alveg heilbrigð og hefur það verið erfitt.
Fyrir tveimur vikum var sýning hjá HRFÍ og fengu allir Leifturs hundar sem mættu 1 einkun þar :
Rakkar:
1) Leifturs Funi, meistarastig besti hundur tegundar og besti hundur í tegundahóp
2) Leifturs Feykir, meistaraefni
3) Courtborne Diesel Celeborn
4) Leifturs Gustur
Tíkur:
1) Leifturs Stilla, meistarastig og 2 besti hundur tegundar
2) ISCH Leifturs Snerpa
3) Leifturs Gusta
4) Leifturs Hviða
stoltir eigendur
Um daginn var hóuðum við í whippet eigendur til þess að prufa hlaupavélina góðu enda styttist í Leiftursmótið. Það var vel mætt í yndislegu veðri. Hægt var að kaupa hlaupamúla af mjóhundadeildinni og fjárfestu allir í þannig. Það voru þó nokkrir byrjunar erfiðleikar enda ekki allir hundarnir sem skildu alveg hvað þeir ættu að gera en þeir sem prufað höfðu áður hlupu eins og vitleysingar :) Við ætlum að reyna aftur í þessari viku. Set hérna inn nokkrar myndir frá hlaupunum enda gaman að sjá hvað þeir taka sig vel út á sprettunum. Allar myndirnar teknar af 12 ára dóttur minni Snæfríði Björgu ;) efnileg....
Leifturs Vindur
Leifturs Læðingur
systurnar Leifturs Gola og Leifturs Hviða
Leifturs Funi
Leifturs Gusta
Ég er svo nýkomin frá Svíþjóð þar sem ég sat alþjóðlega whippet ráðstefnu á fallegum herragarði. Það var mjög fróðlegt og gaman að hitta ræktendur frá öllum heiminum og fræðast og ræða um þessa yndislegu tegund. Tók síðan eina sýningu á vegum sænska whippetklúbbsins og sá marga fallega einstaklinga þar.
Á heimssýningunni voru það 2 hálfsystkini Eldingar sem unnu.
19.06.08
Elding gaut 7 hvolpum í morgun, 2 rökkum og 5 tíkum, allir yrjóttir nema ein tíkin. Allt gekk vel og heilsast þeim öllum vel, myndir hér
14.06.08
Snabbi kóngur er 6 ára í dag !!! Snabbi virðulegur kúrikall með gáfurnar í lagi, yndislegur heimilshundur sem við erum fegin að hafa fengið hingað til lands. Got undan honum og Eldingu fæðist á næstu dögum, þetta verður síðasta gotið undan honum og hlökkum við til að sjá útkomuna .
Elding gengin 8 vikur létt á fæti þótt magin sé stór og finnst henni alveg hrikalega leiðinlegt að fá ekki að fara með út að hlaupa, sér ekkert að því að fara í eltingaleik með bumbu....
11.06.08
Hviða vígaleg með nýja múlinn sinn á góðum spretti á eftir bráðinni, ótrúlega gaman að sjá hvað þau eru einbeitt og gefa allt sitt á hlaupunum, frábært sport !!!
08.06.08
Þá er Elding gengin 7 vikur stór og mikil en hress og ljúf eins og alltaf. Einhver sem vill giska hvað þeir eru margir ?

Þó maður er bara 7 ára verður maður að sinna sínum hundi vel og líka baða hann þegar á þarf. Sædís Embla stendur sig vel og baðar Hviðu sína eftir að hún stökk í skurð fullan af drullu.....
05.06.08
Funi hefur sýnt mikla hæfileika í fótbolta undanfarið ,elskar að hamast með boltann um allt tún og láta sparka og reyna að ná boltanum af öðrum þannig hann kallast þessa dagana Funi Beckham. Hviða er farin að sýna þessu mikin áhuga en er ekki komin með lipurð og færni Funa i boltalistinni , fylgir smá myndasyrpa af gaurnum hér. Ég fjárfesti í körfubolta þannig boltinn myndi endast lengur.
" þorir einhver í mig ? "
30.05.08
Elding er nú gengin 6 vikur og blæs út með hverjum degi, það verður spennandi að sjá hvað hún geymir í þetta sinn.
Funi sýnir hérna fína nýja hlaupamúlinn sem við vorum að fá, en það er skylda af öryggisástæðum fyrir hundana að vera múlaðir í beituhlaupi og race. Þetta eru sérstakir múlar sem hannaðir eru þannig þeir geti andað ótruflað við hlaupin. Mjóhundadeildin mun fá þessa múla til sölu og hvet ég þá sem vilja prufa hundinn sinn að fjárfesta í svona til að eiga og múlvenja hundana.
17.05.08
Elding er 4 ára í dag :) !
Ný mynd af Leifturs Andvara hér
26.04.08
Búið er að para Snabba og Eldingu ef allt gengur upp fáum við hvolpa í kringum 20 júní sjá væntanlegt got
12.03.08
Vorum að fá þær fréttir að INTCH S N DK GB CH Adagio Love Supreme hafi orðið besti hundur tegundar á CRUFTS sýningunni. Óskum Stefan Raghammar innilega til hamingju með þennan frábæra árangur . Þurfum varla að taka það fram að undan þessum stórkostlega hundi eigum við Leifturs Funa og erum þar af ógurlega stolt :)
02.03.08
Við mættum á alþjóðlega hundasýningu HRFÍ og það er óhætt að segja að whippet "kom sá og sigraði" !!!
Elding eða ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen varð besti hundur tegundar, vann tegundahópinn og endaði svo á að verða Besti Hundur Sýningar !!! En ótrúlegt en satt þá er þetta í 3ja sinn sem þessi litla tík hlýtur þann heiður að vera valinn besti hundur sýningar . Elding veitir okkur ómælda gleði á hverjum degi og þökkum við ræktendum hennar Kristinu Hoff og Jörgen Kristensen innilega fyrir að hafa fengið að kaupa þessa yndislegu tík einnig þökkum við dómurum fyrir að dæma hana í þetta heiðursæti. Einnig þökkum við allar þær hamingjuóskir frá vinum og hundaheiminum almennt sem rignt hafa yfir okkur.
Dómari í tegundahópi 10 Arne Foss Noregi
Dómari BIS Nils Molin Svíþjóð

*INTCH ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen
(bíður eftir staðfestingu FCI )
8 af 10 hvolpum Eldingar og Gleipnis voru einnig sýnd á sýningunni og fengu þau öll fyrstu einkun.
Rakkar:
1. Leifturs Funi m.stig cacib og 2bht
2. Courtborne Diesel Celeborn m.efni
3. Leifturs Gustur m.efni
ungliðafl:
2. Leifturs Feykir ,excellent,Hv
3. Leifturs Vindur, excellent,Hv
4. Leifturs Andvari , excellent
Tíkur:
1. ISCH ISW-06 Courtborne Keyzers Arwen, cacib,bht, bhth og Besti Hundur Sýningar .
2. ISCH Leifturs Snerpa , v.cacib
3. Leifturs Stilla m.stig
ungliðafl:
2. Leifturs Hviða ,excellent,hv
3. Leifturs Gusta,excellent, hv
4. Leifturs Gola, excellent
Leifturs ræktun með ræktunarhóp, heiðursverðlaun:
"Lovely group. Three combinations. The breeder can be very satisfied with result, nice outlines, good movers, nice temprament. Well deserved honourprice."
Óskum Kristínu Kristvinsdóttur innilega til hamingju með Álfadísar Drauma Bjart sem varð besti hvolpur sýningar 4-6 mánaða á sunnudeginum en hann er undan ISCH Leifturs Snerpu.
komnar nokkrar nýjar myndir af hvolpum Eldingar og Gleipnis hér
23.02.08
Óskum hvolpum Eldingar og Gleipnis innilega til hamingju með eins árs afmælið sitt
Dóttir okkar Snæfríður Björg deilir afmælisdeginum sínum með hvolpunum en hún varð 12 ára sama dag. Hún hélt Ævintýradiskó fyrir vinkonur sínar en allar áttu þær að mæta sem einhver persóna úr sígildu ævintýri. Snæfríður Björg var að sjálfsögðu úlfurinn úr Rauðhettu. Allar urðu þær að gangast undir próf enda alls kyns hættur á ferð, eitruð epli og annað þannig allar urðu þær að kyssa prins !!! Smá kvíði var í hópnum þar til prinsinn var leiddur fyrir þær með kórónu og skikkju og stukku þær allar til og stilltu sér í röð til að kyssa þennan undurfagra prins, hann naut þess í botn og ekki kvartaði hann þegar sumar smygluðu sér aftur í röðina ;) Prinsinn var að sjálfsögðu Leifturs Funi
21.01.08
Smá viðbót á síðunni um væntanleg got.
15.01.08
Mjóhundadeildin var að gefa út fyrsta íslenska mjóhundadagatalið. Glæsilegar myndir af flottum hundum, allur ágóði sölunnar rennur til kaupa á beituhlaupstæki. Kaupið endilega eintak, takmarkað upplag . Kristín Þorvaldsdóttir formaður mjóhundadeildarinnar sér um alla sölu . kristinthorv@hotmail.com
13.01.08
Gleðilegt ár óskum við hér á Leifturs !!!
